árlegur frídagur sem orðinn er víðtækari en nafnið bendir til. Var tekinn upp 1895 sem hátíðisdagur verslunarmanna í ágústmánuði. Árið 1897 var ákveðið að hann skyldi framvegis vera á föstum mánaðardegi, þjóðhátíðardaginn 2. ágúst, en þann dag árið 1874 héldu Reykvíkingar upp á þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar. Með reglugerð var síðar ákveðið að halda hann fyrsta mánudag í ágúst, og er svo enn. Í Íslandsalmanakinu er dagsins fyrst getið árið 1941.